Í okkar nútíma samfélagi erum við umkringd duldum auglýsingum sem berast til okkar með stjörnunum í gegnum samfélagsmiðla. Hvert sem við förum og hvað sem við gerum eru stjörnurnar ekki langt frá. Og vegna þessarar stöðugu áreitni finnst okkur við kannski neidd til þess að bera okkur saman við þau. Ástæðan fyrir því gæti verið að okkur finnist við ekki jafn mikilvæg og þau, vegna þess að við eigum ekki líf í sviðsljósinu. Sem dæmi um stjörnu sem margir bera sig saman við er hin heimsfræga raunveruleikaþáttastjarna Kim Kardashian. Hún er ein af þeim fjölmörgu stjörnum sem óraunhæft er að bera sig saman við vegna ótal margra fegrunaraðgerða. Að bera sig saman við hana er eins og að bera sig saman við klippimynd. Hennar líf gengur út á að selja sig með því að selja okkur vörur sem eiga að breyta lífi okkar. Þetta er dæmi um dulda auglýsingu sem ekki allir átta sig á. Og sumir trúa því að hlutirnir sem stjörnur selja geti í alvörunni breytt líf sínu og falla í gildruna aftur og aftur. En hversu langt getur þetta gengið þangað til að við missum allt sjálfsálit? Erum við við tilbúin að selja sál okkar samfélagsmiðlunum?