Hvað er hamingja?
Hamingja er flókin tilfinning sem erfitt er að festa hendur á. Samkvæmt orðabók er hamingja gæfa, gengi, gifta eða sæla en í elsta máli þýðir hamingja heilladís eða verndarvættur. Það er samsett úr orðinu hamur sem merkir sinn, húð eða gervi og orðinu -ingja eða (g)engja af sögninni að ganga. Þá þýðir hamingja í raun vættur sem gengur inn í ham eða gervi.
Fólk getur túlkað hamingju á marga vegu. Það getur túlkað það sem vellíðan og að vera ánægt með sig og sína. Eða að eiga mikið af peningum, vinum og frægð. Fólk getur einnig túlkað hamingju sem gleði. En hamingja og gleði er ekki það sama.
Munurinn á hamingju og gleði er sá að gleði er tímabundin tilfinning, einn daginn finnur maður fyrir henni en hinn daginn er maður ekki glaður. Hamingja á hinn bóginn er eitthvað sem maður er, en ekki eitthvað sem maður finnur fyrir.
Samkvæmt mankynssögunni dúkkaði hamingjan ekki upp fyrr en fyrir um 2500 árum, eða þ.e.a.s. þá varð hún að því lífsmarkmiði sem hún er í dag. Það hefur þó ekki alltaf verið horft á hana með þeim augum sem horft er á hana í dag. Búdda sagði að leiðin að hamingju byrjaði með skilningi á rótum kvalarinnar. Í Búddisma eru lærisveinum kennd hin fjögur orð göfuglyndisins. Þau eru: 1.Lífið er Dukkha (kvalir eða andleg geturöskun ), 2. Dukkha skapast af löngun, 3. Dukkha getur verið útrýmt og 4. Leiðin að útrýmingu Dukkha er Áttfaldasta slóðin.
Fólk er oft að fela það ef það er ekki hamingjusamt. Pressan er orðin mikil og það að vera ekki hamingjusamur er feimnismál og fólk skammast sín gjarnan fyrir það. Raunin er sú að það er ekkert að því að vera óhamingjusamur því að það er algengara en við gerum okkur grein fyrir. Samt sem áður er búið að normalísera þunglyndishugsanir og orðið þunglyndi hefur nánast misst merkingu sína.
Umhverfið í kring um okkur hefur gríðaleg áhrif á okkur þótt við tökum ekki endilega eftir því. Samfélagsmiðlarnir eiga stóran hlut í því. Við sjáum hvað samfélagsmiðlastjörnurnar lifa góðu lífi og veltum því fyrir okkur af hverju við
lifum ekki á svona skemmtilegan hátt. En í raunveruleikanum er þetta bara glansmynd sem stjörnurnar sína okkur og við fáum aldrei að sjá erfiðu dagana. Í samfélaginu í dag er mikil pressa á að vera með flottan líkama og maður er stanslaust að bera sig saman við allt og alla í kring um sig.
Ef við eigum mikinn pening erum við þá hamingjusamari? Lifum við betra lífi? Eins og oft er sagt ,, peningar geta ekki keypt hamingju“ en vissulega er ákveðin léttir að standa vel fjárhagslega og þurfa ekki að hafa áhyggjur á því að borga leiguna eða kaupa í matinn. Ef maður á mikinn pening getur maður auðvitað gert meira; ferðast um heiminn, farið í leikhús, út að borða svo dæmi sé tekið. En þetta eru allt hlutir sem eru ekki endilega nauðsynlegir. Það er ekki þar með sagt að við verðum hamingjusöm ef við förum út að borða einu sinni í viku en það getur hjálpað til að gera eitthvað skemmtilegt til tilbreytingar. Það er líka hægt að eiga „of“ mikinn pening og eru til mörg dæmi um að þeir ríku séu þeir nískustu. En aðalatriðið í þessu er að vera þakklátur fyrir það sem maður á því að sumir hlutir geta ekki breyst.